Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Hver er Jón 1/2down

  • Nafn: Jón Hálfdán Pétursson
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Íţróttafrćđingur og knattspyrnuţjálfari

Klukkan

Gagnasafn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Einlćgur ađdáđandi Britney Spears????

04. október 2007 klukkan 00:21
Hann Stuðmundur vinur minn hefur sjaldan verið talinn mikill söngmaður, og það staðfesti hann endanlega 21.september síðastliðinn. Hann var þar á ferð með nokkrum félögum sínum á Langa Manga og ákvað að taka lagið, enda vel við skál.

Eitt er víst að ég hefði aldrei borgað 18.000kr fyrir miða á þessa tónleika. Og svo fékkst það staðfest að hann hefur verið einlægur aðdáðandi Britney Spears, þrátt fyrir að hafa aldrei viljað viðurkenna það.

Hérna sjáum við Stuðmund syngja við undirleik Denna:

http://youtube.com/watch?v=_q7as3kXgeE

Þakkir til ungu snótarinnar sem tók þetta upp á nýja símann sinn :-)

Reyna aftur viđ getraunina

30. september 2007 klukkan 21:58
Jæja, ákvað að laga getraunina aðeins. Það er gert vegna þess að Pétur Magg og Stuðmundur sáu ekki myndina í færslunni, engin furða enda eru þeir líka með Windows 95?
Þannig að ég þurfti að ná í eitthvað drasl á netinu og uppfæra hjá mér, til að bjarga þessum spurningafíklum.

Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína.

Hvað félag á Englandi spilaði í þessum búning?


Helgin fín í alla stađi, nema veđriđ

23. september 2007 klukkan 22:43
Helgin búin að vera fín í alla staði, nema veðrið hefur ekki verið upp á marga fiska. Snjóaði vel í fjöll í dag og helvítis kuldi alla helgina. Byrjaði helgina á því að berja niður veggi í  vallarhúsinu ásamt fleiri liðsmönnum m.fl. BÍ/Bolungarvík.

Mínir menn voru að standa sig á laugardaginn og eru sjóðheitir þessa dagana, og vonandi heldur það áfram.
Aldrei þessu vant, þá var eitthvað um að vera í Bolungarvík í dag. Og segir sagan að Jónas Leifur hafi gripið til sinna ráða, þar sem hann hafi ekki fengið frí fyrir ferð sína til Kína.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1292944

Svo var Stuðmundur að trylla lýðinn á Langa Manga á föstudagskvöldið, og tók lagið. Hefði viljað sjá það, sérstaklega þar sem hann er ekki mjög lagvís og steingeldur söngvari. Það sem ég hef séð og heyrt til hans, þá er hann eitthvað í líkingu við þetta.

http://www.youtube.com/watch?v=dKpNnT7wa38

Þeir sem eiga til myndir af Stuðmundi frá því á föstudagskvöldinu, endilega postið þeim í commentin.

Svo er spurning um að fylgja trendi síðastliðinnar viku, þ.e.a.s. hefja stórfeldan fíkniefnainnflutning.


Starf mitt byrjar međ miklum ágćtum

21. september 2007 klukkan 15:51
Já, ég verð nú bara að segja það að starf mitt sem íþróttakennari við GÍ, byrjar mjög vel þetta haustið og fer vel af stað. Þannig að eins og málin líta út fyrir mér, þá veit ég ekki betur en að starfið við GÍ hafi bara farið vel af stað í haust. Svo ég verð að vera ósammála áheyrnafulltrúa kennara, sem lýsti upphafi skólaársins við GÍ, á síðasta fundi fræðslunefndar.

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=105889

Eðlilega koma einhverjir hnökrar fram þegar mannabreytingar eiga sér stað, annað væri óeðlilegt. Gaman verður að sjá hvernig Chelsea fer af stað aftur eftir mannabreytingar í brúnni.

Og Dóri Skarp, lífið snýst um að halda sér edrú og æfa eins og maður í vetur.

Snillingar í lottói

20. september 2007 klukkan 00:26
Fékk sendan tölvupóst frá Íslenskri getspá, þar sem ég var minntur á að taka þátt í Víkingalottóinu. Póstinn fékk ég sendann miðvikudaginn kl.19:16. Þar er auglýst að ég eigi möguleika á að vinna 100 millur ef ég taki nú þátt.

En neeeiiiii, þessir miklu sölumenn og snillingar í lottóinu, sendu mér póstinn einungis 4 tímum of seint.

Lokað er fyrir sölu kl.16:00 í dag



Þannig að ég næ aldrei að feta í fótspor þessa manns.....


Fyrstu sporin í bloggheiminum

19. september 2007 klukkan 23:28

Jæja, þá er fyrsta færslan mín í þessum mikla bloggheimi orðin að veruleika. Lét undan miklum þrýstingi frá honum http://studmundur.bloggar.is/, miklum vini mínum.

Kominn í langþrátt frí frá fótboltanum, þar sem ég er búinn að vera lítið heima við í sumar. Búinn að vera mikil keyrsla síðastliðinn mánuð, margar æfingar og mikil ferðalög.

Læt þetta duga í fyrstu færslu.

Könnun

Hvernig fer http://jonhalfdown.bloggar.is/ af stađ?

Atburđarteljari